Archive for March, 2006

Kennaraverkfall í Noregi

March 30, 2006

Þá er norskum kennurum nóg boðið. Í dag segja þeir hingað og ekki lengra og ganga út úr skólunum á hádegi til mótmæla hringli sveitafélaganna með vinnutíma þeirra. Náttúrulega eru kennarar í Ósló ekki með í aðgerðunum. Þeir semja sér við stjórn höfuðborgarinnar.
Þó verkfallið komi aðeins til með að standa í hálfan dag [...]

Af Hellvítis Hórum og Hormónasprautum

March 28, 2006

Portugölsk hóra í Svíþjóð.
Merkilegur samskiptamiðill Barnaland. Ætlaði að fara að kíkja á Emil hans Hemma vinar míns en fann þá náttúrulega ekki miðann sem hafði uppýsingar um síðuna að geyma. Datt þá í hug að kíkja á bloggið á Barnalandinu. Það væri til skammar að halda því fram að þar [...]

Afhommun af himnum ofan

March 27, 2006

Biskupinn í Ósló, Ole Chr. Kvarme, sem vill afhomma samkynhneigða.
Nú er þar til máls að taka að biskupinn í Ósló sér hélt ræðu um helgina þar sem hann þar sem hann tíundaði að vel mætti lækna homma og lespíur af ónáttúru sinni. Hann tók þar með undir með síðasta kirkjumálaráðherra Noregs sem sagði í sjónvarpsumræðum [...]

Ísland í NATO og herinn á braut

March 26, 2006

Norskir NATO hermenn sem misstu skriðdreka í gegnum ísilagt vatn og kostaði tvo hermenn lífið á æfingu fyrir stuttu.
Að fylgjast með NATO umræðunni á Íslandi er ævintýri útaf fyrir sig. Halda mætti að ríkisstjórn lýðveldisins væri andlega lömuð eða haldin heilaskaða sem truflaði minni hennar. Það hefur staðið til, allar götur síðan Geroge settist [...]

Sumartíminn brostinn á

March 26, 2006

Þá er sumarið komið. Það kom klukkan tvö í nótt þegar klukkan varð allt í einu þrjú. Leið þess í nótt lá yfir freðmýrar norður Rússlands og suður yfir Sakndinavíuskagan og þar af leiðandi fylgdi sumarkomunni ekki gleðigjafinn varmi eins og flest fólk vonaðist eftir. Nú ruddist þessi árstími inn á stór Gjerdrum [...]

Misjöfn eru mannanna kjör

March 15, 2006

Ég komst ekki til að skrifa sögu úr skólastofunni á síðasta mánudag. þrykki samt einni inn hér. Ég veit ekki hvort ég er að brjóta trúnað með birtingu sögu stúlkunnar sem ég ætla að segja í dag. Treysti því, sé frásögnin trúnaðarbrot, verði farið mildum höndum um mig. Mér finnst einhvern veginn [...]

Hvað gerist næst

March 12, 2006

Central Jamaat-e Ahl-e Sunnat moskan í Urtugötu 11
Nú þegar maður hefur fylgst með ribböldunum í Jamaat-e Ahl-e Sunnat moskunni skilur maður betur orðið hegðunarmynstur barnanna í skólanum. Í mínum skóla er u.þ.b. 40% nemenda sem stunda þessa mosku nánast daglega. Það er náttúrulega ekkert einkennilegt við það að blessuð börnin beita langoftast ofbeldi [...]

Líf og fjör í Moskunni

March 7, 2006

Stjórnmálamaður og glæpagengi. Járnstengur og hnífar. Heil fjölskylda í fangelsi. Allt kemur þetta við sögu í einhverjum mestu illdeilum semm átt hafa sér stað í pakistanskri mosku í miðborg Óslóar. Og þetta er moskan sem flestir nemendur mínir sækja og ég hef töluverð samskipti við einkum þegar ég þarf að fá lánuð bænateppi fyrir ramadan [...]

Grindavíkurferðin

March 6, 2006

Á fyrstu árum tíundaáratugar síðustu aldar tíðkaðist að fara með 8. og 9. bekkinga í Túninu í menningarferð til Grindavíkur á haustdögum. Heimsóttu ungmennin úr Hafnarfirði jafnaldra sína suður með sjó. Kíkt var inn í menntamusterið í Grindavík og gjarnan spilaður eins og einn körfuboltaleikur milli skólanna og ýmsar aðrar íþróttir þreyttu börnin [...]

Nýbúar og framhaldsmenntun

March 3, 2006

Í nýrri könnun í Noregi kemur fram að mjög mismunandi er hvernig nýbúar af annari kynslóð standa gagnvart menntun í samfélaginu. Nýbúar frá Indlandi, Kína og Sri Lanka standa næst innfæddum með tilliti til háskólanáms og eiga auðveldara með að koma sér í eftirsókanarverðar stöður í samfélaginu. Nýbúar frá Tyrklandi og Marokkó, sem flestir [...]